Letra de Myndir
Mild döggin er
Að morgni hún skín
Þegar sólin baðar græna grund gefur okkur dýrðarstund
Bætir heim og léttir lund

Sjá fagran dag þá fólk í vinnu er
Heyra má nú víða vélagný veröld breytist óðum í eitthvað hverfult enn á ný

Er kvölda tekur ævintýrin opna hlið
Og óskirnar þær rætast munu um lágnættið

Svo lifnar nótt
Fer léttfætt yfir jörð
Litlar stjörnur depla augum á upphimni og virðast þá
Yfir veröld alla sjá

Er kvölda tekur ævintýrin opna hlið
Og óskirnar þær rætast munu um lágnættið

Nú glymja högg og hömrum lyfta vanir menn og heimurinn mun verða í smíðum lengi enn

Þú skalt hugsa um allan heiminn eins og heild og aldrei líta á landið þitt sem einkadeild