Emiliana Torrini

Tvaer Stjörnur
( Megad => Megasarlog LP ) Tíminn flýgur áfram Og hann teymir mig á eftir sér Og ekki fæ ég miklu ráðið Um það hvert hann fer En ég vona bara hann hugsi Soldið hlýlega til mín Og leiði mig á endanum Aftur upp til þín Ég gaf þér forðum keðju úr gulli um hálsinn þinn Svo gleymdir þú mér ekki í dagsins amstri nokkurt sinn í augunum þínum svörtu horfði ég á sjálfan mig um hríð og ég vonaði að ég fengi bara að vera þar alla tíð Það er margt sem angrar en ekki er það þó biðin því ég sé það fyrst á rykinu Letras de cancioneshve langur tími er liðinn og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum sem skiptir öllu máli því að nóttin mín er dimm og ein og dagurrin á báli Já og andlitið þitt málað hve ég man það alltaf skýrt augnlínur og bleikar varir brosið svo hýrt jú ég veit vel að ókeypis er allt það sem er best en svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er vest Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á en ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær ég man þig þegar augun mín eru opin hverja stund en þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund From Letras Mania